Ég er alveg að gera í brkurnar af stressi fyrir hönd íslenska
landsliðsins í handbolta í þessum töluðu orðum. Mér hefur eigi
orðið svefnsamt í nótt vegna spennu/kvíða fyrir leiknum í kvöld og
it´s killing me!!!!
Danir eru pottþéttir á að vinna, eru farnir að plana
úrslitaleikinn og allt og eru bókstaflega að missa sig og ég vona
bara að íslendingar sjái við þessum viðsjarverðu áætlunum.
Að öðru leyti er svo héðan að frétta að Anna babe kemur í
heimsókn á fimmtudagskvöldið og verður hérna yfir helgina og við
erum m.a. að fara að djamma feitast í Aarhus
Svo datt mér eitt í hug. Danir eru ekkert að herma mikið meira
eftir enska tungumálinu en við. W.C. stendur fyrir WaterCloset.
Íslendingar segja á ensku: Voter Klosett. Svo tekur maður Voter af
og skellir einni kommu yfir o´ið, þá er maður kominn með
KLÓSETT.
Já ég er stressuð og þetta verður hörkuleikur.
Out!