01.11.2006 19:22:31 / sandra
Ég kem aftur í Bónus.... eða...
Góðan daginn góðir hálsar.
Mér þykir leitt að tilkynna ykkur að ég muni leggjast svo lágt að
gefast upp. En eins og venjulega kenni ég öðrum um. Enda var það
ekki ég sem stakk upp á þessu. Það var Sasja, trúið því eður ei.
Og hver eru mín framtíðarplön? Jú þau eru eins og allir fyrrum
samstarfsmenn mínir vita, Bónus.
Mér gengur mjög vel í vinnunni, fæ mikið hrós frá öllum mögulegum
en það eru auðvitað nokkar HELVÍTIS DRUSLUR (afsakið
orðbragðið) sem reyna að gera mér lífið leitt. Það er kannski
erfitt að sætta sig við að yfirmaður manns er helmingi yngri en
maður sjálfur, og HEY afhverju fengu þær ekki stöðuhækkun? Afþví ég
er betri.
Ég er með mikilmennskubrjálæði. En bara útaðtil. Ég trúi ekki
endilega sjálf öllu sem ég skrifa hér, ég bara skrifa.
Hver vill fá Sösju, Oscar og mig til Íslands??
Svar óskast sem fyrst.
-Sandra