Afhverju virkar ekkert núna??? Eða... afhverju týni ég öllu?
Annars hef ég fréttir að færa. Toppið þetta: Í fyrrinótt var
brotist inn í Alta sem ég vinn í, Molboen þar sem ég vinn líka og
Fellini sem er veitingastaður sem liggur undir íbúðinni minni. Svo
ég hef ákveðið að muna að læsa hurðinni.
Annars var engu sérstöku stolið, öll þessi fyrirhöfn og nánast
ekkert tekið! Hálfvitar.
En nú eru plöm mín um að koma heim kannski að fara í vaskinn. Ég
eins og svo oft áður er að skipta um skoðun varðandi að flytja heim
aftur. Ég get þó glatt ykkur (ehm..) með nærveru minni á hinum
kalda klaka í norðri um jólin.
Annars er ég bara að deyja úr þreytu, ég er að hugsa um að kíkja
samt smá út á morgun, fer eftir veðri og vindum auk
vindáttar. Þá myndi förinni verða heitið til Árósa, þar sem við
Sasja getum kannski gist og farið svo í jólainnkaup á laugardaginn.
Vona að það verði eitthvað úr því, þar sem þetta er síðasta helgin
sem ég get farið eitthvað út áður en ég kem og mála Reykjavíkurbæ
rauðan.
Ég er komin með nýja flugu í hausinn... En ég vil ekki deila henni
með ykkur lesendur góðir því ég veit ekkert hvað verður. Svo mikið
get ég þó sagt að ég fer að skoða á morgun og taka myndir. Talandi
um myndir þá var ég að pósa um daginn sem mér finnst fyndið. Ég get
aldrei litið almennilega út á myndum og tek mig svo til og stilli
mér upp í vinnugallanum (sem er rauður... oj) og leyfi Agli Bjarka
ljósmyndara að taka af mér myndir fyrir verkefni!! Ég er ekki frá
því að honum hafi tekist að fá mig til að líkjast einhverju sem
minnir á manneskju þrátt fyrir hina hroðalegu rauðu dragt. Svo var
líka þægilegt að daman hans var þarna, þau eru svo fín bæði
tvö
Arnar gamli er hálfbúandi hér þessa dagana þar sem hann er í
praktík hér í eplabænum og það er ansi notalegt að fá að hitta
kallinn svona, annars líður svo langt á milli.
Sasja, Chris og ég erum að fara að verða dómarar í Barna Júróvisjón
á morgun HAHA!!!! Það verður erfitt ef maður má ekki hlæja. Þá verð
ég rekin sem dómari... Annars er allt gott að frétta af litlu
fjölskyldunni í Baunalandi!
Ég hef lítið annað að segja, enda leiðinlegt blogg með eindæmum.
Æm át...
-Sandra